Mér þykir alltaf jafn vænt um að sjá hvað jólauppskriftirnar eru mikið skoðaðar hér á gamla blogginu í desember og það stendur auðvitað til að uppfæra þær allar einn daginn á Lestur & Latte blogginu. Á sunnudaginn mátti ég til með að taka smá forskot á jólin og gera möndlugrautinn (risalamande), bara til þess að geta smellt af nýjum myndum. Nokkru áður hafði ég deilt þar nýrri uppskrift að sænsku fléttubrauði með kardamomu, sem er nýjasta jólahefðin okkar. Það var hér á borðum á sunnudögum í desember ásamt heitu súkkulaði, smákökum og fleira og er komið til að vera. Listinn yfir nýjar og uppfærðar uppskriftir á Lestur & Latte lítur svona út í dag:
BAKSTUR | EFTIRRÉTTIR:
• brauðbollur með sesamfræjum
• indverskt te (chai latte)
• klattar með grjónum
• kryddbrauð
• marengstoppar
• möndlugrautur (risalamande)
• perumöffins
• quinoa-búðingur með grískri jógúrt, berjum og ávöxtum
• rabarbaramulningur með berjum
• súkkulaðisósa
• sænskt fléttubrauð með kardamomu
MATUR | MEÐLÆTI:
• kartöflubátar með kryddsalti
• kjúklingaleggir, maríneraðir
• pestó með basilíku
• pizzasósa
• svartbaunaborgarar
Að lokum vil ég óska ykkur öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári og um leið þakka fyrir innlitin á bloggið/bloggin á liðnum árum,
Lísa Hjalt
BAKSTUR | EFTIRRÉTTIR:
• brauðbollur með sesamfræjum
• indverskt te (chai latte)
• klattar með grjónum
• kryddbrauð
• marengstoppar
• möndlugrautur (risalamande)
• perumöffins
• quinoa-búðingur með grískri jógúrt, berjum og ávöxtum
• rabarbaramulningur með berjum
• súkkulaðisósa
• sænskt fléttubrauð með kardamomu
MATUR | MEÐLÆTI:
• kartöflubátar með kryddsalti
• kjúklingaleggir, maríneraðir
• pestó með basilíku
• pizzasósa
• svartbaunaborgarar
Að lokum vil ég óska ykkur öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári og um leið þakka fyrir innlitin á bloggið/bloggin á liðnum árum,
Lísa Hjalt