föstudagur, 25. september 2015

ný uppskrift - perumöffins



Uppskrift að perumöffins er sú nýjasta á Lestur & Latte blogginu en hana hafði ég ekki birt áður hér. Listinn yfir nýjar og uppfærðar uppskriftir lítur því svona út í dag:

BAKSTUR | EFTIRRÉTTIR:

brauðbollur með sesamfræjum
indverskt te (chai latte)
klattar með grjónum
marengstoppar
perumöffins
quinoa-búðingur með grískri jógúrt, berjum og ávöxtum
súkkulaðisósa

MATUR | MEÐLÆTI:

kartöflubátar með kryddsalti
kjúklingaleggir, maríneraðir
pestó með basilíku
pizzasósa
svartbaunaborgarar


Með kveðju,
Lísa Hjalt

mánudagur, 17. ágúst 2015

sunnudagur, 24. maí 2015

nýjar uppskriftir og uppfærðar



Þið sem notið matarbloggið að staðaldri hafið væntanlega tekið eftir því að ég hef uppfært einstaka uppskriftir og birt nýja útgáfu af þeim á blogginu mínu Lestur & Latte. Smám saman mun ég gera slíkt hið sama við allar uppskriftirnar sem er að finna hér. Á hinu blogginu er að finna bland af uppskriftum, umfjöllun um bækur, textíl og fleira en þið sem eruð að leita eftir uppskriftum eingöngu finnið þær undir færsluflokknum · Lísa Hjalt uppskriftir.


Hér er listi yfir nýjar og uppfærðar uppskriftir sem þið finnið núna á Lestur & Latte:

BAKSTUR | EFTIRRÉTTIR:

brauðbollur með sesamfræjum
indverskt te (chai latte)
klattar með grjónum

MATUR | MEÐLÆTI:

kjúklingaleggir, maríneraðir
pestó með basilíku
svartbaunaborgarar



Ég hef lokað fyrir athugasemdir á þessu „gamla“ matarbloggi, eins og ég kalla það, en ef það er eitthvað sem er óljóst í sambandi við ákveðna uppskrift sem enn er að finna hér þá er ykkur velkomið að senda mér tölvupóst.

Með kveðju,
Lísa Hjalt

Pin It button on image hover