þriðjudagur, 15. október 2013

sætkartöflusúpa með ristuðum graskersfræjum



Þessi súpa gerist varla haustlegri. Ég fann hana á vefsíðu Sweet Paul (mæli með nettímaritinu þeirra sem er fallegt, inniheldur uppskriftir og fleira, og er ókeypis) og gerði bara minniháttar breytingar á henni: bætti kókosolíu sem valmöguleika, notaði gríska jógúrt í stað rjóma og bætti engifer. Ég á eftir að smakka hana með fersku timían og er viss um að það gefi skemmtilegan keim.

SÆTKARTÖFLUSÚPA MEÐ RISTUÐUM GRASKERSFRÆJUM

HRÁEFNI

  • 1 laukur
  • 1 hvítlauksrif
  • valmöguleiki: lítill bútur ferskt engifer (ca. á stærð við tening)
  • 4 stórar sætar kartöflur
  • 3 stórar gulrætur
  • 1½-2 matskeiðar ólífuolía eða kókosolía (2 í upprunalegu uppskriftinni)
  • 2 lífrænir grænmetisteningar (eða kjúklinga-)
  • 1 lítri vatn
  • 190 ml grísk jógúrt (rjómi í upprunalegu uppskriftinni)
  • ¼ teskeið mulið chilli
  • ¼ teskeið nýmalaður svartur pipar
  • skreytið með ristuðum graskersfræjum, greinum af fersku timían og grískri jógúrt (eða rjóma)

AÐFERÐ

  1. Afhýðið/flysjið og skerið laukinn, sætu kartöflurnar, gulræturnar og engiferið
  2. Léttsteikið laukinn og grænmetið í stórum potti
  3. Bætið grænmetisteningum og vatni út í og látið suðuna koma upp, minnkið þá hitann og stillið á lágan eða miðlungs hita
  4. Sjóðið í um 25 mínútur þar til grænmetið er orðið mjúkt
  5. Notið töfrasprota til að mauka súpuna (má líka nota matvinnsluvél en betra þá að láta hana kólna á undan). Bætið grísku jógúrtinni (eða rjóma) út í til að þykkja súpuna. Hrærið og látið suðuna koma upp
  6. Kryddið með chilli og svörtum pipar. Bætið salti út í ef ykkur finnst það vanta
  7. Ristið graskersfræ á pönnu
  8. Berið súpuna fram í skálum skreytta með graskersfræjum, greinum af fersku timían og grískri jógúrt (eða rjóma)

fimmtudagur, 8. ágúst 2013

grænmetisbaka með kartöflum og vorlauk



Kannski væri bara réttast að kalla þessa uppskrift karöflur með smá böku til hliðar! Það er næstum því óeðlilegt hversu hrifið heimilisfólkið mitt er af kartöflum og því nota ég eins mikið af þeim og rúmast í bökudisknum. Ólíkt mörgum frönskum grænmetisbökum (quiche) þá eru ekki 5 egg og rjómi í þessari og heldur ekki heilt fjall af smjöri í botninum. Í raun er ekkert smjör í honum. Það þarf hvorki að setja deigið í plastfilmu og láta það standa né að forbaka botninn. Hljómar það ekki bara nokkuð vel? Ef þið hafið keypt deig í svona bökur hingað til þá er kominn tími til að láta af þeirri iðju og gera þetta sjálf. Það er auðveldara en þið haldið og hollara. Ef þið eruð hrifin af kartöflum þá vona ég að ykkur líki bakan en ég á eftir að deila fleiri uppskriftum af grænmetisbökum hér á síðunni.

GRÆNMETISBAKA MEÐ KARTÖFLUM OG VORLAUK

HRÁEFNI


FYLLING

  • 4 stórar karöflur (ca. 600 g), forsoðnar í 20 mínútur
  • 2 egg
  • 250 g kotasæla
  • 2 teskeiðar (lífrænt) sinnep
  • 1 teskeið þurrkuð steinselja eða timían
  • 1 teskeið hvítlaukssalt
  • ¼ teskeið rósmarín, þurrkað
  • ¼ teskeið sjávarsalt
  • 7 cm bútur af grænum hluta eins vorlauksbúnts, sneiddur
  • 2 góðar handfyllir (ca. 60 g) af blönduðum salatblöðum eða spínati
  • Ofan á fyllinguna: 75-100 g rifinn ostur og örlítið af nýrifnum parmesan

BOTN

  • 1¼ bolli spelti
  • ½ teskeið sjávarsalt
  • 2½ matskeið lífræn jurtaolía
  • 4 matskeiðar vatn

AÐFERÐ

  1. Byrjið á að forsjóða kartöflurnar ca. klukkutíma áður en þið byrjið á grænmetisbökunni: Sjóðið þær í 20 mínútur án loks. Hellið vatninu af og leyfið þeim að kólna
  2. Í stóra skál skulið þið blanda saman eggjum (það má hræra þau létt), kotasælu, sinnepi, kryddjurtum, salti og salatblöðum
  3. Takið vorlauksbúntið og skerið 7 cm bút af græna hlutanum og sneiðið nokkuð fínt. Bætið saman við og setjið skálina til hliðar á meðan þið gerið botninn
  4. Fyrir botninn: Sigtið speltið og saltið í aðra stóra skál. Bætið olíu og vatni í skálina og blandið rólega saman með sleif. Notið hendurnar til þess að hnoða deigið örlítið í skálinni til að fá tilfinningu fyrir áferðinni. Ef það vill molna þá þurfið þið aðeins meiri olíu; ef það er of olíukennt þá notið þið meira spelti. (Ef það þarf meiri olíu, setjið þá bara nokkra dropa í lófann og hnoðið deigið aðeins í höndunum þar til áferðin verður rétt)
  5. Stráið spelti á borðplötu og mótið kúlu úr deiginu. Fletjið það út með kökukefli þar til þið hafið hring sem er um 28 cm að þvermáli. Notið örlítið af olíu til að smyrja 24 cm bökudisk og setjið deigið í formið. Það er ágætt að stinga á nokkrum stöðum í botninn með gaffli
  6. Flysjið kartöflurnar, skerið þær í bita og blandið þeim saman við fyllinguna. Hellið svo fyllingunni ofan í botninn, jafnið út og stráið ostinum yfir
  7. Bakið við 180°C (undir- og yfirhiti) í 50-55 mínútur þar til osturinn er orðinn gullinbrúnn
  8. Leyfið bökunni að standa í um 5 mínútur áður en þið berið hana fram

þriðjudagur, 9. júlí 2013

sveppasalat



Á laugardaginn kom ég við í tímaritabúð og var að blaða í hinum og þessum tímaritum. Ég fletti í gegnum franska matarblaðið Saveurs og sá mynd af sveppasalati sem var aðeins of girnilegt. Ég vissi að það léti mig ekki friði fyrr en ég smakkaði það þannig að það var ákveðið að bera salatið fram sem meðlæti sama kvöld. Ég skildi ekki alveg öll orðin í aðferðarlýsingunni en ég lagði innihaldið á minnið og þetta er mín útgáfa af salatinu (skammturinn í blaðinu var mun stærri því þeir notuðu 1 kíló af sveppum). Að útbúa salatið gæti ekki verið einfaldara en hafið í huga að það þarf að marínera sveppina í tvær klukkustundir. Ég bar það fram með grilluðum kjúklingaleggjum og kúskús og eins og eiginmaðurinn orðaði það þá var það óvenjulega gott í einfaldleika sínum. Ég er alveg sammála.

SVEPPASALAT

300 g sveppir
1½ matskeið jómfrúarólífuolía
safi úr ca. ⅓ af sítrónu
sjávarsalt
væn lúka af ferskum kóríander


Sneiðið sveppina (eða sparið tíma og kaupið þá sneidda) og setjið þá í stóra skál ásamt ólífuolíu, sítrónusafa og salti. Setjið plastfilmu yfir skálina og marínerið sveppina í tvær klukkustundir. Ef möguleiki, hrærið þá létt í skálinni af og til.

Saxið ferskan kóríander og blandið saman við áður en þið berið salatið fram.

Pin It button on image hover