![]() |
© Lísa Hjalt | Lestur & Latte
|
mánudagur, 16. desember 2013
marengstoppar (súkkulaði)
fimmtudagur, 12. desember 2013
súkkulaðikrem eða -sósa
Yngri dóttir okkar átti afmæli í gær og þar sem hún elskar marengs þá skellti ég í marengstoppa sem ég ber fram með þeyttum rjóma, ferskum berjum og heimagerðri súkkulaðisósu. Ég deildi einmitt mynd á Facebook síðunni í gær þegar ég var að baka og lofaði uppskrift, sem ég birti fljótlega. En ég áttaði mig á því þegar ég var að útbúa sósuna að ég hafði lofað að deila nýju súkkulaðikremi með ykkur, kremi sem ég er farin að nota á skúffukökuna. Ég nota sömu uppskrift þegar ég geri sósu fyrir marengstoppa en eyk þá rétt aðeins vatnið til að hafa það meira fljótandi. Sykur telst náttúrlega aldrei vera hollusta en mér líður betur að blanda saman lífrænum hrásykri við agave síróp til að gera krem heldur en að nota flórsykur. Ég hef ekki notað flórsykur síðan 2006 og hef aldrei saknað hans. Það er fljótlegt að útbúa kremið en hafið í huga að það þarf að standa í klukkutíma fyrir notkun.
SÚKKULAÐIKREM EÐA -SÓSA
HRÁEFNI
SÚKKULAÐIKREM EÐA -SÓSA
HRÁEFNI
- 3 matskeiðar gott kakó, helst lífrænt/fair-trade
- 1½ matskeið lífrænn hrásykur
- 2½ matskeið agave
- 3-3½ matskeið vatn (4½-5 msk = ca. 75 ml ef súkkulaðisósa)
- lítill bútur (20 g) lífrænt dökkt súkkulaði eða mjólkursúkkulaði
- má sleppa: klípa sjávarsalt, fínt
AÐFERÐ
- Setjið allt hráefnið í lítinn pott eða pönnu
- Hitið við meðalhita þar til það fer að sjóða og hrærið rólega á meðan. Þegar suðan er komin upp þá fjarlægið þið pottinn/pönnuna af hellunni
- Hellið kreminu í skál og leyfið því að standa í klukkutíma fyrir notkun
þriðjudagur, 15. október 2013
sætkartöflusúpa með ristuðum graskersfræjum
Þessi súpa gerist varla haustlegri. Ég fann hana á vefsíðu Sweet Paul (mæli með nettímaritinu þeirra sem er fallegt, inniheldur uppskriftir og fleira, og er ókeypis) og gerði bara minniháttar breytingar á henni: bætti kókosolíu sem valmöguleika, notaði gríska jógúrt í stað rjóma og bætti engifer. Ég á eftir að smakka hana með fersku timían og er viss um að það gefi skemmtilegan keim.
SÆTKARTÖFLUSÚPA MEÐ RISTUÐUM GRASKERSFRÆJUM
HRÁEFNI
- 1 laukur
- 1 hvítlauksrif
- valmöguleiki: lítill bútur ferskt engifer (ca. á stærð við tening)
- 4 stórar sætar kartöflur
- 3 stórar gulrætur
- 1½-2 matskeiðar ólífuolía eða kókosolía (2 í upprunalegu uppskriftinni)
- 2 lífrænir grænmetisteningar (eða kjúklinga-)
- 1 lítri vatn
- 190 ml grísk jógúrt (rjómi í upprunalegu uppskriftinni)
- ¼ teskeið mulið chilli
- ¼ teskeið nýmalaður svartur pipar
- skreytið með ristuðum graskersfræjum, greinum af fersku timían og grískri jógúrt (eða rjóma)
AÐFERÐ
- Afhýðið/flysjið og skerið laukinn, sætu kartöflurnar, gulræturnar og engiferið
- Léttsteikið laukinn og grænmetið í stórum potti
- Bætið grænmetisteningum og vatni út í og látið suðuna koma upp, minnkið þá hitann og stillið á lágan eða miðlungs hita
- Sjóðið í um 25 mínútur þar til grænmetið er orðið mjúkt
- Notið töfrasprota til að mauka súpuna (má líka nota matvinnsluvél en betra þá að láta hana kólna á undan). Bætið grísku jógúrtinni (eða rjóma) út í til að þykkja súpuna. Hrærið og látið suðuna koma upp
- Kryddið með chilli og svörtum pipar. Bætið salti út í ef ykkur finnst það vanta
- Ristið graskersfræ á pönnu
- Berið súpuna fram í skálum skreytta með graskersfræjum, greinum af fersku timían og grískri jógúrt (eða rjóma)
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)


