Þetta er nú alveg á mörkum þess að kallast uppskrift því einfaldara gerist það varla. Fólki kann að finnast það skrýtið en við kaupum svo til aldrei 'take-out' mat. Við gerðum meira af því hér áður fyrr en á síðastliðnum tveimur árum hefur það kannski gerst tvisvar. Ef við höfum lítinn tíma í eldhúsinu þá er aðalatriðið að skella í eitthvað sem er einfalt og tekur lítinn tíma, eins og t.d. þessa fersku tómatpastasósu á meðan pastað sýður í pottinum. Heimagert er bara svo miklu betra – það finnst mér alla vega.
TÓMATPASTASÓSA MEÐ HVÍTLAUK OG FERSKRI BASILÍKU
HRÁEFNI
- 325-350 g kirsuberjatómatar
- ½ matskeið ólífuolía
- 1-2 hvítlauksrif, pressuð
- 1 teskeið agave eða hrásykur
- ½-1 matskeið söxuð fersk basilíka
- sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar eftir smekk
AÐFERÐ
- Skerið tómatana í fernt og steikið upp úr ólífuolíunni á lágum hita
- Bætið restinni af hráefninu út í og látið malla við lágan hita á meðan þið sjóðið pastað
- Saltið og piprið eftir smekk og berið fram með brauði eða einföldu gulrótasalati
PS. Þið getið notað basilíkukrydd í staðinn fyrir ferska basilíku. Það er svona þumalputtaregla að nota eina teskeið af kryddi á móti matskeið af ferskri jurt; ég hef ekki notað það sjálf í þessa þannig að þið notið bara meira ef ykkur finnst bragðið aðeins of dauft.