Sýnir færslur með efnisorðinu pasta- og núðluréttir. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu pasta- og núðluréttir. Sýna allar færslur

mánudagur, 29. ágúst 2011

tómatpastasósa með hvítlauk og ferskri basilíku


Þetta er nú alveg á mörkum þess að kallast uppskrift því einfaldara gerist það varla. Fólki kann að finnast það skrýtið en við kaupum svo til aldrei 'take-out' mat. Við gerðum meira af því hér áður fyrr en á síðastliðnum tveimur árum hefur það kannski gerst tvisvar. Ef við höfum lítinn tíma í eldhúsinu þá er aðalatriðið að skella í eitthvað sem er einfalt og tekur lítinn tíma, eins og t.d. þessa fersku tómatpastasósu á meðan pastað sýður í pottinum. Heimagert er bara svo miklu betra – það finnst mér alla vega.

TÓMATPASTASÓSA MEÐ HVÍTLAUK OG FERSKRI BASILÍKU

HRÁEFNI

  • 325-350 g kirsuberjatómatar
  • ½ matskeið ólífuolía
  • 1-2 hvítlauksrif, pressuð
  • 1 teskeið agave eða hrásykur
  • ½-1 matskeið söxuð fersk basilíka
  • sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar eftir smekk

AÐFERÐ

  1. Skerið tómatana í fernt og steikið upp úr ólífuolíunni á lágum hita
  2. Bætið restinni af hráefninu út í og látið malla við lágan hita á meðan þið sjóðið pastað
  3. Saltið og piprið eftir smekk og berið fram með brauði eða einföldu gulrótasalati

PS. Þið getið notað basilíkukrydd í staðinn fyrir ferska basilíku. Það er svona þumalputtaregla að nota eina teskeið af kryddi á móti matskeið af ferskri jurt; ég hef ekki notað það sjálf í þessa þannig að þið notið bara meira ef ykkur finnst bragðið aðeins of dauft.

fimmtudagur, 3. febrúar 2011

núðlusúpa með kjúklingi og grænmeti

Áður fyrr vissi ég fátt betra í kulda en að fá mér núðlusúpu á ónefndu veitingahúsi í Reykjavík sem var borin fram með sítrónu, chilli-mauki og engifer. Eiginmaðurinn kynnti mig fyrir þessari dásemd en kunningjahópur hans hittist þarna reglulega og fékk sér súpu. Við vorum í Köben í einhverju kuldakasti í desember 2009 og dauðlangaði í súpuna. Það var ekkert annað í stöðunni en að ráðast í tilraunir þar til réttu nammi namm hljóðin heyrðust við borðið. Síðan þá hefur súpan verið svo til vikulega á okkar borðum í köldu veðri og hjá nokkrum öðrum sem fengið hafa uppskriftina. Einn kosturinn við hana er sá að það er einfalt að útbúa hana. Ég nota í flestum tilfellum lífrænar gulrætur og þar sem ég nota engifer í hana ber ég hana ekki fram með fersku engifer. Við skerum þó alltaf sítrónu og kreistum út í og notum svo örlítið af Sambal Oelek chilli-mauki. Það eru tvö mikilvæg atriði í þessari súpugerð: Það er að nota gæða kjúklingateninga, helst lífræna, og gæða núðlur. Ég hef gert þessa súpu með síðri vörum og þetta var bara ekki sama súpan. Ég mæli því með að spara ekki þegar kemur að þessu hráefni. (Myndin er tekin áður en kjúklingurinn og núðlurnar fóru ofan í pottinn.)

NÚÐLUSÚPA MEÐ KJÚKLINGI OG GRÆNMETI

HRÁEFNI

  • 3 lítrar vatn
  • 4 kjúklingateningar, lífrænir
  • 3 stórir hvílauksgeirar, fínsaxaðir
  • engifer (15-20 g), fínsaxað
  • 5-6 gulrætur, fyrst sneiddar nokkuð gróft og hver hluti skorinn langsum í fernt
  • 1 blaðlaukur, einungis græni hlutinn notaður og skorinn í ca. 2 cm langar sneiðar, eða græni hlutinn af einu vorlauksbúnti
  • 300-400 g kjúklingur, skorinn í frekar smá bita
  • 200-275 g núðlur (veltur á þykkt núðlanna)

AÐFERÐ

  1. Sjóðið vatnið í stórum potti með loki (til að flýta fyrir má sjóða vatnið fyrst í hraðsuðukatli)
  2. Bætið kjúklingateningunum út í ásamt fínsöxuðum hvítlauk og engifer (ef þið eigið ekki gæða teninga þá má nota það sem ég kalla venjulega en þá þarf rétt aðeins að salta líka með sjávarsalti)
  3. Bætið svo sneiddum gulrótum og blaðlauk/vorlauk út í og látið malla í 5 mínútur með loki
  4. Bætið kjúklingabitunum út í og sjóðið súpuna í 8-10 mínútur til viðbótar með loki
  5. Það fer eftir því hvernig núðlur þið notið en yfirleitt þarf ekki að sjóða núðlur nema í ca. fjórar mínútur. Bætið núðlunum út í ca. 4-5 mínútum áður en kjúklingurinn er tilbúinn
  6. Berið súpuna fram með chilli-mauki og sítrónubitum til að kreista út í. Ef þið viljið meira engifer þá getið þið að sjálfsögðu notað meira í súpuna sjálfa eða borið það fram ferskt og rifið

PS. Við erum fimm og yfirleitt náum við svona nokkurn veginn að klára upp úr pottinum, enda eru börnin dugleg að borða. Núðlusúpur geymast ekki vel og því finnst mér best að veiða kjúklinginn og gulræturnar upp úr pottinum ef það verður afgangur. Það má svo steikja þetta tvennt daginn eftir upp úr sojasósu og bera fram með núðlum eða grjónum.

sunnudagur, 23. maí 2010

lasagna með svörtum baunum

Upphaflega var ég með nýrnabaunir í titli þessarar uppskriftar en í langan tíma hef ég notað svartar baunir og það er orðið vaninn. María dóttir mín var hvatinn að þessari uppskrift en hún er bókstaflega óð í lasagna. Þar sem ég er lítið hrifin af útgáfum með hakki þá langaði mig að nota baunir og þessi uppskrift fæddist svo til um leið og ég setti svuntuna á mig. Ef María mætti ráða þá væri þetta í matinn á hverju kvöldi. Hugmyndina að hvítu sósunni fékk ég góðfúslega lánaða hjá (Cafe)Sigrúnu og gerði smávægilegar breytingar.

LASAGNA MEÐ SVÖRTUM BAUNUM (EÐA NÝRNABAUNUM)

HRÁEFNI

RAUÐ SÓSA

  • 1 matskeið létt ólífuolía eða önnur góð olía
  • 1 laukur, fínsaxaður
  • 3 hvítlauksrif, fínsöxuð
  • 1 gul eða rauð paprika, skorin í bita
  • 1 gerlaus grænmetisteningur
  • 2 dósir tómatar
  • 1 matskeið óreganó
  • 1 matskeið fersk basilíka eða 1 teskeið þurrkuð
  • 1 teskeið sætt chilli
  • 1 teskeið Modena balsamedik
  • 1 dós svartar baunir eða nýrnabaunir
  • sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar eftir smekk
  • má sleppa: maísbaunir eftir smekk
  • má sleppa: ein lúka spínat, saxað gróft

HVÍT SÓSA

  • 1 stór dós kotasæla (ca. 450 g)
  • 2 (hamingju)egg*
  • 150 g rifinn ostur (gott að nota mozzarellablöndu)
  • ½ teskeið múskat

ANNAÐ

  • 100 g rifinn ostur
  • nýrifinn parmesan ostur eftir smekk
  • 10-12 lasagnaplötur (helst án hvíts hveitis)

AÐFERÐ

RAUÐ SÓSA
  1. Setjið baunirnar í sigti, skolið af þeim og látið liggja í sigtinu þar til þið notið þær
  2. Veltið lauk upp úr olíu og steikið á pönnu við meðalhita þar til hann byrjar að mýkjast. Bætið papriku út í og loks hvítlauk og steikið í nokkrar mínútur
  3. Setjið grænmetistening á pönnuna og blandið saman við
  4. Bætið tómötum á pönnuna og hækkið hitann
  5. Blandið öllum kryddum, kryddjurtum og ediki saman við
  6. Skellið baunum út í (maís og spínati ef notað), saltið og piprið eftir smekk og stillið á lægsta eða meðalhita

HVÍT SÓSA

  1. Hrærið kotasælu og eggjum saman í stórri skál
  2. Bætið 150 g af rifnum osti, kryddið með múskati og blandið saman
  1. Forhitið ofn samkvæmt leiðbeiningum á lasagnaplötupakka og stillið ofngrind neðst
  2. Slökkvið undir pönnunni, setjið smá af rauðri sósu í botninn á eldföstu móti og raðið 3-4 lasagnaplötum ofan á (veltur á stærð mótsins)
  3. Setjið hvíta sósu ofan á plöturnar, svo rauða sósu og aftur lasagnaplötur. Endurtakið eftir þörfum og endið á restinni af hvítri og rauðri sósu
  4. Stráið 100 g af rifnum osti ásamt parmesan yfir og bakið neðst í ofni samkvæmt leiðbeiningum á pakka (plöturnar sem ég nota kalla á 220°C í 25 mínútur)

* Sleppa má eggjum og nota þá um 600 g af kotasælu

Berið fram með til dæmis spínati, einföldu salati, grófu brauði eða hvítlauksbrauði. Það er mjög gott að nota gerlausa pizzabotnsuppskrift eða snittubrauðin á CafeSigrun til að útbúa hvítlauksbrauð. Ef ég nota snittubrauðin þá baka ég þau fyrr um daginn eða deginum áður og skelli í frystinn. Ég læt ólífuolíu, hvítlauk, óreganó og örlítið sjávarsalt í litla skál og pensla heit brauðin/nýbakaðan pizzabotninn.

Pin It button on image hover