miðvikudagur, 10. október 2012

epla- og kanilmöffins


Það er óhætt að segja að þessir muffinsar eru ansi algengir hér á bæ enda eiga epli og kanill alltaf vel við. Við köllum þá alltaf appins og það hefur örugglega verið eiginmaðurinn sem setti það orð saman úr orðunum 'apps' og muffins á einhverjum tímapunkti. Ef ég hef ekki tíma til að baka eplakökuna þá skelli ég frekar í þessa, enda fljótlegt. Ég nota alltaf eina teskeið af kanil en ef ykkur finnst kanilbragðið verða of yfirgnæfandi þá minnkið þið bara magnið og ef þið notið venjulegt lyftiduft þá er ein teskeið nóg. Ég er svo með nokkrar útfærslur hér að neðan ef þið viljið leika ykkur með uppskriftina.

EPLA- OG KANILMÖFFINS

HRÁEFNI

  • 200 g spelti(1½ bolli)
  • 2 teskeiðar vínsteinslyftiduft
  • ½ teskeið fínt sjávarsalt
  • ½-1 teskeið kanill
  • 1 stórt (hamingju)egg
  • 1 eggjahvíta (stórt egg)
  • 100 g lífrænn hrásykur (½ bolli)
  • 2 matskeiðar hreint hlynsíróp
  • 1 matskeið kókosolía
  • 2 stór rauð epli

Útfærsla: Það má nota minna af kanil og/eða nota engifer eða múskat, eða bæði. Stundum bæti ég út í einni lúku af hökkuðum pekanhnetum og ég hef líka notað rúsínur. Smá lífrænt súkkulaði, fínhakkað, er líka gott; 20 g er nóg og sleppið þá einni matskeið af sírópinu.

AÐFERÐ

  1. Blandið þurrefnunum saman í skál og setjið til hliðar
  2. Í aðra skál skuluð þið hræra saman eggi, eggjahvítu, hrásykri, hlynsírópi og kókosolíu (ef kókosolían er í föstu formi látið þá krukkuna standa í skál með heitu vatni fyrir notkun)
  3. Afhýðið eplin og fjarlægið steinana. Rífið eplin á grófu rifjárni og bætið þeim svo út í eggja- og sykurblönduna og blandið saman með sleif eða sleikju
  4. Bætið þurrefnablöndunni út í og hrærið bara létt, alls ekki mikið. Deigið á að vera létt í sér þannig að þið þurfið bara rétt að velta því með sleif þar til hráefnin hafa blandast saman
  5. Smyrjið silíkonmöffinsform með kókosolíu áður en deigið fer í formin (gerir 12 stykki). Þið getið ekki notað pappírsform fyrir þessa uppskrift þar sem hún inniheldur litla fitu
  6. Bakið við 200°C (180°C á blæstri) í 22-25 mínútur
  7. Látið kólna í formunum á kæligrind í 5-10 mínútur

sunnudagur, 1. júlí 2012

fjölkornabrauð með rósmarín og timían



Ég hafði ekki notað ger í þrjú ár þegar ég setti þessa uppskrift saman. Ég hef ekkert á móti geri heldur finnst mér einfaldlega svo þægilegt að baka brauð með vínsteinslyftidufti því þá þarf ekki að láta deigið hefast, það er tilbúið strax til baksturs. Ég er voðalega hrifin af slíkum bakstri. Jæja, svo gerðist það að eiginmaðurinn greip ranga pakka í heilsuvörudeildinni og kom heim með dágóðan slatta af geri. Mér fannst eitthvað asnalegt að fara og skila þeim þannig að ég setti bara á mig svuntuna og lagðist í smá tilraunir. Ég viðurkenni að það var skrýtið að nota ger að nýju og ég þurfti að venjast lyktinni. Það er þess vegna sem ég ákvað að nota kryddjurtir í brauðið. Hvað um það, þessi uppskrift er ein af þeim sem kom út úr þessum tilraunum og aðrar verða birtar síðar. Ef keypt er þurrger í heilsubúðum þá inniheldur það engin aukaefni. Pakkarnir sem ég nota innihalda 9 grömm af geri og eru hugsaðir fyrir 500 grömm af mjöli. Það þarf ekki að blanda þessu geri saman við vatn, það blandast bara saman við þurrefnin þannig að þetta er ákaflega þægilegur bakstur. Í flestum geruppskriftum er talað um að hnoða deigið mjög vel, jafnvel í margar mínútur, en mér finnst best að hnoða það sem minnst (sennilega vegna þess að ég nota spelti). Ég geri tvo meðalstóra brauðhleifa úr deiginu.

FJÖLKORNABRAUÐ MEÐ RÓSMARÍN OG TIMÍAN

HRÁEFNI

  • 500 g spelti
  • 1 pakki þurrger (9 g) - sjá lýsingu í inngangi
  • 1 teskeið fínt sjávarsalt
  • ½ matskeið hrásykur, lífrænn
  • ½ matskeið graskersfræ
  • ½ matskeið hörfræ
  • ½ matskeið sesamfræ
  • ½ matskeið sólkjarnafræ
  • 1 teskeið timían
  • ¼ teskeið rósmarín
  • 150 ml heitt vatn
  • 125 ml sojamjólk eða önnur tegund mjólkur
  • 1 matskeið létt ólífuolía eða önnur gæða jurtaolía

AÐFERÐ

  1. Blandið öllum þurrefnum saman í stóra skál
  2. Sjóðið vatn og blandið svo vatninu, mjólkinni og olíunni í mælikönnu. Blandið rólega saman við þurrefnin á meðan þið hrærið með sleif
  3. Notið aðra höndina til þess að hnoða deigið örlítið á meðan það er í skálinni. Ef það er enn þurrt spelti á botninum þá má bæta við 1-2 matskeiðum af vatni og hnoða aðeins lengur. Passið bara að deigið verði ekki klístrað
  4. Setjið lok á skálina eða viskustykki og látið deigið hefast í 45 mínútur á hlýjum stað
  5. Setjið bökunarpappír á bökunarplötu. Skiptið deiginu í tvennt, stráið örlitlu spelti á borðplötuna og hnoðið hvorn helming. Ég byrja á því að mynda eins konar kúlu og ég breyti henni rólega í lengju sem ég rúlla aðeins fram og til baka. Stærðin á hverjum brauðhleif verður ca. 10 x 22 cm
  6. Bakið við 200°C í 20-22 mínútur


mánudagur, 28. maí 2012

hveitikökur ömmu lóu



Þær voru ófáar stundirnar sem ég eyddi sem stelpa í eldhúsi ömmu minnar Lóu í Vogahverfinu í Reykjavík, nánar tiltekið í Karfavoginum. Kökusortirnar sem finna mátti í hennar skápum voru allt að því endalausar enda var amma vöknuð fyrir allar aldir og byrjuð að baka. Í fersku minni er hveitikökugerðin. Amma hnoðaði deigið létt á borðplötunni, flatti það svo út og skar með litlum skera sem ég man enn hvernig leit út (engir pizzuskerar til í þá daga enda hefði amma örugglega fussað við slíkum tólum). Kökunum var svo skellt á pönnuna og á stuttum tíma hafði amma galdrað fram dásemd sem borðuð var með smjöri. Það var aldrei hægt að borða of mikið af hveitikökum! Það er svo einfalt að skella í hveitikökur og þær eru enga stund að verða til á pönnunni - ég nota að vísu fínt spelti í mínar. Á þessu heimili finnst okkur best að nota bara ¼ teskeið af salti í deigið því við borðum þær ekki með smjöri heldur penslum kökurnar með smá ólífuolíu og stráum örlitlu sjávarsalti yfir. Ef þið viljið baka þær með meira salti þá er það í góðu lagi en ekki nota mikið meira; ég prófaði þær einu sinni með ½ teskeið og okkur fannst þær of saltar.

HVEITIKÖKUR ÖMMU LÓU

HRÁEFNI

  • 1 bolli fínt spelti (250 ml)
  • ½ teskeið matarsódi eða vínsteinslyftiduft
  • ¼ teskeið fínt sjávarsalt
  • 50-60 ml léttmjólk/sojamjólk

AÐFERÐ

  1. Blandið spelti, matarsóda og salti saman í skál
  2. Bætið 50 ml af mjólk út í á meðan þið hrærið létt með sleif. Hnoðið svo deigið eilítið með höndunum á meðan það er enn í skálinni til þess að finna hvort það þurfi kannski smá mjólk til viðbótar
  3. Stráið spelti á borðplötuna og létthnoðið deigið, skiptið því svo til helminga og fletjið út með kökukefli (ég er ekki upptekin af einhverri formfræðilegri fegurð, ýmist flet ég út tvo meðalstóra hringi eða eitthvað sem líkist ferningi)
  4. Notið pizzaskera til þess að skera hvorn hring/ferning í fernt og stingið hverja köku með gaffli ca. þrisvar sinnum alveg í gegn. (Deigið gefur ykkur sem sagt átta kökur og ég mæli með að útbúa bara annan skammt ef þið ætlið að gera fleiri því það er best að ráða við deigið þegar það er ekki of mikið um sig)
  5. Hellið örlítilli olíu (ég nota ólífuolíu) á pönnu og dreifið úr með eldhúsbréfi. Stillið á næsthæsta hita og leyfið pönnunni að hitna áður en þið raðið eins mörgum kökum og þið komið á pönnuna
  6. Snúið kökunum við með spaða þegar þær hafa aðeins brúnast og leyfið hinni hliðinni að bakast
  7. Berið fram með ólífuolíu og sjávarsalti eða smjöri

Pin It button on image hover